Samvinna og snör handtök

Fréttir
Jón Björn afhendir Skírni tölvuna
Jón Björn afhendir Skírni tölvuna

Góð og þétt samvinna Eyjafjarðarsveitar og Ungmennafélagsins Samherja birtist með ýmsum hætti.

Jón Björn Hákonarson sveitarstjóri fékk á dögunum veður af því að fartölva Skírnis Más Skaftasonar, verkefnastjóra Samherja, væri að gefa upp öndina. Sveitarstjórinn var fljótur að bregðast við, boðaði Skírni Má á sinn fund og færði honum nýja fartölvu samdægurs. 

Skírnir Már hefur skrifstofuaðsetur á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar, þar sem samskipti og samstarf sveitarfélagsins og ungmennafélagsins eru hluti af daglegu starfi.

Eyjafjarðarsveit er afskaplega stolt af því glæsilega starfi sem Samherjar bjóða upp á. Félagið gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og skapar ungum sem öldnum tækifæri til hreyfingar, samveru og þátttöku í fjölbreyttu tómstundastarfi. Að baki liggur dýrmætt framlag starfsfólks, þjálfara og sjálfboðaliða sem sveitarfélagið kann vel að meta. Það er því einkar ánægjulegt að geta stutt við starfið með þessum hætti.

Gamla tölvan má nú setjast í helgan stein, en sú nýja á nóg af verkefnum fram undan í þjónustu við íþrótta- og félagsstarfið í sveitinni.

Við hvetjum íbúa til að kynna sér fjölbreytt starf og framboð félagsins á heimasíðu Samherja, www.samherjar.is.