Töluvert hefur borið á skemmdum á hoppubelgnum sem staðsettur er austan megin við íþróttamiðstöðina. Sést hefur til einstaklinga sem gera sér það að leik að fara á hjólum upp á belginn sem stranglega er bannað.
Þetta hefur leitt af sér skemmdir, bæði lengri rifur og smærri göt, eitthvað sem sífellt verður erfiðara að gera við eftir því sem þeim fjölgar.
Við viljum beina því til forráðamanna barna og unglinga að ræða málin við þau og brýna fyrir þeim að þetta sé ekki heimilt, viljum við hafa belginn í gangi áfram.
Starfsfólk íþróttamiðstöðvar