Ákveðið hefur verið að beitartímabil sauðfjár hefjist 15.júní árið 2026 og lýkur því þann 1.október samkævmt samþykktum um búfjárhald.
Beitartímabil hrossa hefst þann 20.júní 2026 og lýkur því þann 10.janúar á næsta ári.
Fjallsgirðingar
Áhersla er lögð á að fjallsgirðingar skulu fjár- og gripheldar fyrir 1. júní og séu það til 10. janúar. Mælst er til þess að fullorðnum hrútum sé ekki sleppt á afrétt.
Búfjárbeit
Fjallskilanefnd bendir á að nýti umráðamaður ekki að fullu land það sem hann hefur fyrir eigin búfé er honum heimilt að leyfa öðrum afnot af því að því marki sem beitarþol leyfir. Ef um óskipt land er að ræða verða sameigendur einnig að veita leyfi fyrir slíkri heimild. Umráðamanni lands ber að tilkynna til sveitarstjórnar hverjum hann heimilar beit og fyrir hvaða fjölda búfjár, sbr. 8. gr. laga nr. 6/1986, sbr. einnig ákvæði í 7. gr. fjallskilasamþykktar fyrir sveitarfélög við Eyjafjörð nr. 173/2011.
Minnt er á að samkvæmt samþykkt um búfjárhald í Eyjafjarðarsveit skal umráðamaður búfjár, sem ekki er haldið heima í gripheldum girðingum, sjá til þess að búfénaður sé rekinn á fjall í afrétti og sameiginleg beitarlönd eigi síðar en tveimur vikum eftir að það er heimilt. Sé búfé ekki rekið á fjall skal umráðamaður tilkynna það til sveitarfélagsins og jafnframt tryggja öruggar vörslur þess í heimalandi með gripheldum girðingum.
Mælst er til þess að fullorðnum hrútum sé ekki sleppt á afrétt.
Sveitarstjóri.