Starfsauglýsing - Starfsmaður eignasjóðs 100% starf

Fréttir

Starfsmaður eignasjóðs

Eyjafjarðarsveit óskar eftir að ráða starfsmann eignasjóðs með áherslu á húsvörslu í grunnskóla, leikskóla og íþróttamiðstöð.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Húsvörsluverkefni í grunnskóla, leikskóla og íþróttamiðstöð.

  • Umsjón og eftirlit með húsnæði, búnaði og lóðum.

  • Minniháttar viðhald og lagfæringar.

  • Undirbúningur og frágangur húsnæðis vegna daglegrar starfsemi og viðburða.

  • Samstarf við starfsfólk stofnana og þjónusta við notendur húsnæðisins.

  • Önnur tilfallandi verkefni á vegum eignasjóðs.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af húsvörslu, viðhaldi eða sambærilegum störfum er kostur.

  • Verkleg færni og almenn tæknikunnátta.

  • Áhugi á að starfa í umhverfi barna og ungmenna.

  • Lipurð í samskiptum, þjónustulund og samstarfshæfni.

  • Frumkvæði, sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum.

  • Stundvísi, samviskusemi og ábyrgðarkennd.

  • Góð íslenskukunnátta.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Davíð Ragnar Ágústsson í síma 894 3118

Umsóknarfrestur er til og með 26. október. Umsókn ásamt starfsferilsskrá skal senda á esveit@esveit.is 

Öll áhugasöm, óháð kyni, eru hvött til að sækja um starfið.

Eyjafjarðarsveit áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.