Undanfarna mánuði hafa sveitarstjórn og sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar unnið markvisst að því að fara yfir stöðu mála varðandi Kristnesspítala og tók sveitarstjórn málið nú aftur á 676. fundi sínum þann 30.apríl.
Greinar hafa verið ritaðar og fundir haldnir með stjórnendum Sjúkrahússins á Akureyri í þeim tilgangi að greina stöðuna og leggja fram tillögur um leiðir til úrlausnar, meðal annars með því að skipta viðfangsefninu niður í afmarkaða þætti.
Erindi hafa verið send til heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, þingmanna kjördæmisins og á Ríkiseignir. Jafnframt hafa farið fram samtöl við þingmenn kjördæmisins sem hafa lýst áhyggjum af stöðunni.
Sveitarstjóri og oddviti sveitarstjórnar hafa átt samtöl við fjármálaráðherra og við þingmenn kjördæmisins ásamt stjórnendum SAK.
Tillögur Eyjafjarðarsveitar hafa hingað til fyrst og fremst beinst að því að einfalda verkefnið með því að færa eignarhald íbúða, gatnakerfis og veitna af herðum ríkisins og úr umsjón Sjúkrahússins á Akureyri. Með því gæti stofnunin einbeitt sér að lögbundinni kjarnastarfsemi sinni.
Málið hefur þó þróast á undanförnum misserum og umfang þess aukist með nýjum upplýsingum um afar slæmt ástand spítalans og íbúðarhúsnæðis á svæðinu, sem ekki lá fyrir í upphafi. Ljóst er að þörf fyrir viðbrögð eru nú bæði umfangsmeiri, viðkvæmari og brýnni en upphaflega lá fyrir.
Í bókun sveitarstjórnar kemur fram að hún óttast að þegar liggi fyrir sú stefna að færa starfsemina frá Kristnesi og finna henni nýjan stað.
Afstaða sveitarstjórnar er skýr, hún leggst gegn því að starfsemin verði lögð af á Kristnesi og telur að sú aðstaða og það umhverfi sem þar hafi verið byggt upp í gegnum árin sé einkar vel til endurhæfingar fallin. Þá telur sveitarstjórn að ekki verði í neinni fyrirsjáanlegri framtíð byggð upp álíka aðstaða annarstaðar sem hafi sömu kosti fram að færa.
Sveitarstjórn leggur þó áherslu á að ef slík ákvörðun verði tekin, að leggja starfsemina alfarið af á Kristnesi, þá sé brýnt að slík ákvörðun liggi fyrir fljótt og örugglega svo unnt verði að hefja vinnu við að finna húsinu og svæðinu nýtt og farsælt hlutverk.
Óskir sveitarstjórnar eru:
Að ákvarðanir um framtíð Kristnesspítala liggi fyrir hið fyrsta.
Að endurhæfingarstarfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verði áfram rekin á Kristnesi.
Að ríkið skýri sem fyrst framtíðarstöðu eignarhalds á íbúðarhúsnæði á svæðinu.
Að ef starfsemi Kristnessspítala verður flutt eða lögð niður hefjist tafarlaust vinna við að finna húsnæðinu ný not, innan eða utan eignarhalds ríkisins.
Að Eyjafjarðarsveit verði virkur þátttakandi í ákvörðunum um framhaldið.