Starf/störf í stuðningsþjónustu
Eyjafjarðarsveit leitar að áhugasömum einstaklingum í stuðningsþjónustuteymið. Stuðningsþjónusta er fyrir þá sem búa í heimahúsum og geta ekki hjálparlaust séð um heimilishald, persónulega umhirðu og nauðsynlegar athafnir daglegs lífs vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda, fötlunar eða af öðrum ástæðum. Leitast er við að koma til móts við þarfir hvers og eins.
Starfsfyrirkomulag
-
Verktaka- eða tímavinnusamningur
-
Sveigjanlegur vinnutími
-
Fjöldi innlita eru sveigjanleg og fer eftir samkomulagi
Helstu verkefni
-
Félagslegur stuðningur og samvera
-
Samskipti við þjónustuþega
- Létt heimilisstörf og þrif samkvæmt þörfum
Hæfniskröfur
-
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
-
Ábyrgð, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Jákvæðni, þolinmæði og frumkvæði
-
Reynsla af umönnun er kostur
-
Bílpróf æskilegt
Við erum að stækka teymið okkar og leitum því að fólki sem vill taka þátt í gefandi og skemmtilegu starfi þar sem hægt er að hafa raunveruleg áhrif á líf annarra. Starfið er sveigjanlegt og getur hentað vel sem aukavinna og getur falist í því að sinna allt frá einu heimili upp í mun fleiri samkvæmt fastri rútínu.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband og kynna sér starfið nánar. Upplýsingar veitir Bjarki Ármann Oddsson, skrifstofu- og fjármálastjóri, í síma 463-0600. Sótt er um starfið með því að senda umsókn á esveit@esveit.is
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.