Sumarlokun hjá Eyjafjarðarsveit og Skipulags- og byggingarfulltrúa

Fréttir

Skrifstofur Eyjafjarðarsveitar og Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar verða lokaðar frá 20. júlí til og með 3. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.

Skrifstofurnar opna aftur þriðjudaginn 4. ágúst, að lokinni verslunarmannahelgi.

Ef erindið er brýnt, er hægt að senda tölvupóst á:

Tölvupósthólfin verða vöktuð á meðan skrifstofurnar eru lokaðar.

Auglýsingablaðið. Næsta auglýsingablað kemur út eftir sumarlokun eða þriðjudaginn 4. ágúst. Loka skilafrestur auglýsinga fyrir blaðið er kl. 10:00 þann dag.

Við óskum íbúum og öðrum gestum sveitarfélagsins gleðilegs sumars og hlökkum til að taka á móti ykkur aftur í ágúst.

Njótið sumarsins!