Hjá Eyjafjarðarsveit eru mörg spennandi sumarstörf í boði fyrir fólk sem hefur áhuga á að starfa í líflegu starfsumhverfi í fallegu umhverfi okkar stækkandi samfélags.
Sundlaugarverðir
Lausar eru tvær stöður kvenna í sundlaugarvörslu. Helstu verkefni eru öryggisgæsla, þjónusta við gesti íþróttamiðstöðvar og tjaldsvæðis, þrif eftir þrifaáætlunum og almenn afgreiðsla. Unnið er í vaktavinnu.
Hæfniskröfur
- Vera orðin 18 ára.
- Hafa hreint sakavottorð.
- Hafa ríka þjónustulund.
- Vera stundvís.
- Hafa gott vald á íslensku og ensku.
- Vera jákvæð.
- Sýna frumkvæði.
- Vera nákvæm í vinnubrögðum.
Vinnustaðurinn hefur komið mjög vel út í starfsánægjukönnunum sumarstarfsmanna síðustu ár.
Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambandsins.
Umsóknir, ásamt kynningarbréfi, ferilsskrá og lista yfir meðmælendur skulu sendar á netfangið karlj@esveit.is.
Nánari upplýsingar gefur Karl Jónsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvar í síma 691-6633 á vinnutíma eða í tölvupósti.
Tjaldvörður
Ein staða tjaldvarðar er laus til umsóknar. Helstu verkefni eru þjónusta við gesti tjaldsvæðis, umhirða svæðisins og þrif. Einnig skipta tjaldverðir með sér vöktum á gámasvæði tvisvar í viku og sinna öðrum verkefnum skv. ákvörðun yfirmanns. Unnið er í vaktavinnu, en frí aðra hvora helgi utan tveggja helga sem tjaldverðir vinna saman á vegna álags.
Hæfniskröfur
- Vera orðin 18 ára.
- Hafa hreint sakavottorð.
- Hafa ríka þjónustulund.
- Vera stundvís.
- Hafa gott vald á íslensku og ensku.
- Vera jákvæð.
- Sýna frumkvæði.
- Vera nákvæm í vinnubrögðum.
Vinnustaðurinn hefur komið mjög vel út í starfsánægjukönnunum sumarstarfsmanna síðustu ár.
Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambandsins.
Umsóknir, ásamt kynningarbréfi, ferilsskrá og lista yfir meðmælendur skulu sendar á netfangið karlj@esveit.is.
Nánari upplýsingar gefur Karl Jónsson forstöðumaður íþróttamiðstöðvar í síma 691-6633 á vinnutíma eða í tölvupósti.
Verkstjóri og flokksstjóri vinnuskóla
Lausar eru stöður verkstjóra og flokksstjóra í Vinnuskóla Eyjafjarðarsveitar. Verkstjóri skipuleggur verkefni vinnuskólans í samráði við umsjónarmann. Hann stjórnar starfi nemenda, leiðbeinir nemendum og sér til þess að fram fari fræðsla um rétt vinnubrögð og verkþætti í starfinu.
Flokksstjóri ber ábyrgð á vinnuflokkum í samráði við verkstjóra og sinnir verkefnum við hreinsun á umhverfi og almennum garðyrkjustörfum.
Verkstjóri og flokksstjóri vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda.
Hæfniskröfur:
- Hafa hreint sakavottorð.
- Hafa bílpróf.
- Vera góðar fyrirmyndir.
- Sýna stundvísi.
- Geta starfað með unglingum og unnið að jákvæðum aga.
- Sýna sjálfstæði.
- Vera vinnusöm.
Laun eru skv. kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsgreinasambandsins.
Umsóknir, ásamt kynningarbréfi, ferilsskrá og lista yfir meðmælendur skulu sendar á netfangið sunna@esveit.is.
Nánari upplýsingar gefur Sunna Björg Valsdóttir umsjónarmaður vinnuskóla í gegn um netfangið sunna@esveit.is eða í síma 849 0206 á vinnutíma.
Umsóknarfrestur í þessi störf er til 1. mars 2026.