Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttir

Kjörfundur

Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Félagsborg (Skólatröð 9) gengið er inn um inngang að skrifstofum Eyjafjarðarsveitar.

Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja með mynd eða á annan fullnægjandi hátt. Bent er á að ef nota á stafræn ökuskírteini þá þarf að huga að uppfærslu þeirra áður en komið er á kjörstað. Ýtið hér fyrir leiðbeiningar um uppfærslu á rafrænu ökuskírteini

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra fer fram sem hér segir:

Strandgata 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorg)

  • Virka daga og á uppstigningardag: kl. 10-18
  • Um helgar: kl. 11-15
  • Á kjördag: kl. 10-17

Talning atkvæða

Talning atkvæða fer fram á kjördag kl 22:00 Í fundarherbergi 2 á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar.

Kjörskrá

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga er fram eiga að fara laugardaginn 16. maí 2026 liggur almenningi til sýnis á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar en opið er á skrifstofunum virka daga frá kl. 10:00 til 14:00.  Á kjörskrá skal taka þá sem uppfylla skilyrði 4. gr. kosningalaga nr. 112/2021 og skráðir eru með lögheimili í sveitarfélaginu samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár miðað við 8. apríl 2026.

Framboðslistar

Tveir framboðslistar skiluðu gögnum og voru báðir listar samþykktir af kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar.

Listarnir í framboði eru:

F-listinn og K-listinn

https://www.esveit.is/eyjafjardarsveit/frettir/tilkynning-fra-kjorstjorn-eyjafjardarsveitar-tveir-listar-samthykktir 

 

Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar

Einar Jóhannsson, Sigríður Hrefna Pálsdóttir og Þór Hauksson Reykdal