Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 15. október sl. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (L152799) skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir um 9 ha svæði í landi Syðri-Varðgjár ofan Veigastaðavegar og er á íbúðarsvæði ÍB35 í aðalskipulagi. Skipulagssvæðið afmarkast af Veigastaðavegi í vestri og nær þaðan til austurs upp í Vaðlaheiði. Mörkin í norðri eru við landamerki Ytri-Varðgjár og í suðri liggja mörkin við landamerki Kotru og Smáralæks. Á svæðinu eru uppi áform um að byggja 15 íbúðarhús með aðkomu frá Veigastaðavegi.
Skipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, hér á heimasíðu sveitarfélagsins og á vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 228/2026. Hægt er að skila inn athugasemdum um málið til 17. desember nk. á vef skipulagsgáttar. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.
Syðri-Varðgja-dsk-tilaaga-uppdrattur-2026-10-09.pdf
Syðri-Varðgja-dsk-tillaga-greinargerd_2026-10-09.pdf
Skipulags- og byggingarfulltrúi.