Syðri-Varðgjá íbúðarsvæði, Eyjafjarðarsveit – kynning tillögu á vinnslustigi

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 16. apríl sl. að kynna tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (L152799) í Eyjafjarðarsveit skv. 4 mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir um 9 ha svæði í landi Syðri-Varðgjár ofan Veigastaðavegar og er á íbúðarsvæði ÍB35 í aðalskipulagi. Skipulagssvæðið afmarkast af Veigastaðavegi í vestri og nær þaðan til austurs upp í Vaðlaheiði. Mörkin í norðri eru við landamerki Ytri-Varðgjár og í suðri liggja mörkin við landamerki Kotru og Smáralæks. Á svæðinu eru uppi áform um að byggja 15 íbúðarhús með aðkomu frá Veigastaðavegi.

Skipulagstillagan er aðgengileg á opnu húsi á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, þann 4. maí nk. milli kl. 12 og 15, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 228/2026. Hægt er að skila inn athugasemdum um málið til 13. maí nk. á vef Skipulagsgáttar. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

SYÐRI-VARÐGJÁ DEILISKIPULAG UPPDRÁTTUR - TILLAGA

SYÐRI-VARÐGJÁ DEILISKIPULAG GREINARGERÐ - TILLAGA

Skipulags- og byggingarfulltrúi