Þormóðsstaðavirkjun og Núpárvirkjun í Sölvadal – kynning skipulagslýsingar
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 29.10.2026 að kynna skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi og nýs deiliskipulags fyrir tvær vatnsaflsvirkjanir í Sölvadal, Núpárvirkjun (allt að 7 MW) og Þormóðsstaðavirkjun (allt að 3 MW). Fyrirhugað er að landnotkun á virkjanasvæðunum breytist úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði.
Lýsingin er einnig aðgengileg í Skipulagsgátt, www.skipulagsgatt.is, undir málsnúmerum 1306/2026 og 1308/2026. Ábendingum við lýsinguna skal skila í gegnum Skipulagsgáttina.
Þormóðasstaðavirkjun og Núpárvirkjun – Skipulagslýsing
Kynningartími er frá 18.11.2026 til og með 09.12.2026.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar.