Menningar- og velferðarnefnd Eyjafjarðarsveitar úthlutaði í fyrsta sinn afreks- og hvatningarstyrk sveitarfélagsins nú í nóvember. Markmið styrksins er að styðja ungt afreksfólk með lögheimili í Eyjafjarðarsveit til þátttöku í viðurkenndum alþjóðlegum verkefnum á sviði íþrótta og lista og mæta hluta af ferðakostnaði vegna slíkrar þátttöku. Alls voru það þrjú ungmenni sem hlutu styrk að þessu sinni og hlaut hvert þeirra kr. 100.000 í styrk. Styrkjum er úthlutað einu sinni á ári og er umsóknarfrestur 1. nóvember. Nánari upplýsingar um afreks- og hvatningarstyrk má finna á vefsíðu Eyjafjarðarsveitar.
Aníta Júlíana Benjamínsdóttir var valin í U-18 ára landslið Íslands í íshokkí, sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku í ársbyrjun.
Freyja Rán Sigurjónsdóttir var sömuleiðis valin í U-18 ára landslið Íslands í íshokkí, sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku.
Viktor Arnbro Þórhallsson var valinn í landslið Íslands í hestaíþróttum sem tók þátt í Norðurlandamótinu í Svíþjóð á árinu.
Af þessu tilefni tók þetta unga afreksfólk á móti viðurkenningum úr hendi Jóns Björns Hákonarsonar sveitarstjóra.