Hægt verður að kjósa utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna sveitarstjórnarkosninganna þann 16. maí. Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma er að finna undir hverju embætti fyrir sig hér https://island.is/s/syslumenn/kosning-utan-kjoerfundar
Hjá Sýslumanninum á Akureyri er hægt að kjósa í Strandgötu 1, á milli kl. 10:00 - 15:00 alla virka daga, en vakin er sérstök athygli á því að þar er staðsettur kjörkassi merktur Eyjafjarðarsveit. Vonast er til að þetta fyrirkomulag gagnist kjósendum en eins og kunnugt er hefur kjósendum í sveitarstjórnakosningum, sem greiða atkvæði utan kjörfundar hjá Sýslumanni þurft að annast sjálfir flutning og afhendingu atkvæðis síns til viðkomandi sveitarfélags.
Einnig vekur kjörstjórn athygli á því að kjörskrá sveitarfélagsins liggur frammi til sýnis á skrifstofum Eyjafjarðarsveitar. Skrifstofunnar eru opnar frá kl. 10:00 - 14:00 alla virka daga.
Kjörstjórn Eyjafjarðarsveitar,
Einar G. Jóhannsson
Þór Hauksson Reykdal
Sigríður Hrefna Pálsdóttir