Tilkynningar um tjón af völdum refa

Fréttir

Eyjafjarðarsveit hvetur bændur, landeigendur og aðra sem verða fyrir tjóni af völdum refa til að tilkynna það til sveitarfélagsins.

Mikilvægt er að upplýsingar um tjón af völdum refa séu skráðar og tilkynntar til Eyjafjarðarsveitar, svo yfirsýn fáist yfir umfang þess. Tilkynningar sveitarfélaga eru meðal þeirra upplýsinga sem nýttar eru við mat á umfangi tjóns og fyrirkomulagi refaveiða.

Í tilkynningu er óskað eftir upplýsingum um:

  • nafn tjónþola og jörð,
  • hvar og hvenær tjónið varð,
  • eðli og umfang tjónsins, svo sem fjölda búfjár eða annað sem varð fyrir tjóni,
  • áætlað fjárhagslegt tjón, eftir því sem unnt er,
  • öðrum upplýsingum eða ljósmyndum sem geta varpað ljósi á atvikið.

Eyjafjarðarsveit hvetur til þess að tjón sé tilkynnt þótt ekki liggi fyrir nákvæmt mat á umfangi þess.

Tjónstil­kynningar sendist fyrir 12. október til Eyjafjarðarsveitar á esveit@esveit.is.