Tvær íbúðir til leigu í Skólatröð

Fréttir
Hrafnagilshverfi
Hrafnagilshverfi

Eyjafjarðarsveit auglýsir tvær íbúðir í Skólatröð til leigu. Annars vegar er um að ræða íbúð fyrir eldri borgara að Skólatröð 6, sem verður laus frá og með 1. október 2026, og hins vegar almenna leiguíbúð á efri hæð Skólatraðar 7, sem verður laus frá 1. september 2026.

Skólatröð 6 – íbúð fyrir eldri borgara

Íbúðin er 76,2 fermetrar að stærð og í henni er eitt svefnherbergi, stofa og eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Aðgengi að íbúðinni er gott, en ganga þarf upp þrjú þrep við inngang. Aftan við íbúðina er pallur með skjólgirðingu.

Íbúðin verður laus til úthlutunar frá og með 1. október 2026.

Skólatröð 7 – almenn leiguíbúð

Íbúðin er á annarri hæð og er um 110 fermetrar að stærð. Í henni eru fjögur svefnherbergi, stofa með svölum, eldhús og baðherbergi. Íbúðin hefur nýlega verið endurnýjuð. Aðgengi er um sameiginlegan stigagang með einni annarri íbúð.

Íbúðin verður laus til úthlutunar frá 1. september 2026 og er leigð tímabundið, til og með 31. maí 2030.

Umsóknarfrestur um báðar íbúðirnar er til og með 16. ágúst 2026

 

Sótt er um rafrænt og má nálgast umsóknarformið hér:
https://www.esveit.is/is/stjornsysla/skjol-og-utgefid-efni/eydublod/umsokn-um-leiguhusnaedi 

Spurningar varðandi íbúðirnar og leiguna má senda á esveit@esveit.is