Umhverfisverðlaun 2025

Fréttir
Afhending Umhverfisverðlauna Eyjafjarðarsveitar 2025
Afhending Umhverfisverðlauna Eyjafjarðarsveitar 2025

Á dögunum afhenti Atvinnu- og umhverfisnefnd Umhverfisverðlaun fyrir árið 2025 þar sem þau Stefán Árnason, Vaka Jónsdóttir og Aðalsteinn Stefnisson hlutu verðlaunin. 

Aðalsteinn Stefnisson tók við verðlaununum fyrir Hótel North þar sem hann hefur staðið að metnaðarfullri uppbyggingu á undanförnum árum og er enn með umtalsverðar hugmyndir í pípunum.

Hjónin Stefán Árnason og Vaka Jónsdóttir tóku á móti verðlaununum vegna sérlega fallegs og snyrtilegs umhverfis sem þau hafa skapað á fjölda árum að heimili sínu í Smáralundi.

 

Eyjafjarðarsveit óskar verðlaunahöfum til hamingju.