Sveitarstjórn auglýsir eftir áhugasömum aðilum á aldrinum 16-20 ára til tveggja ára setu í ungmennaráði.
Um er að ræða tvo aðalmenn og tvo varamenn.
Helstu verkefni og skyldur er að finna hér í Erindisbréfi fyrir ungmennaráð Eyjafjarðarsveitar.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudaginn 2. september á esveit@esveit.is
Í umsókninni þarf eftirfarandi að koma fram:
- Nafn
- Kennitala
- Símanúmer og netfang
- Lögheimili (þarf að vera í Eyjafjarðarsveit)
- Segðu stuttlega frá þér og áhugamálum þínum.
- Hvers vegna þú hefur áhuga á að sitja í ungmennaráði Eyjafjarðarsveitar?
- Er eitthvað málefni í Eyjafjarðarsveit sem þú myndir sérstaklega vilja hafa áhrif á?