Ungmennaþing SSNE var haldið á Húsavík 14. og 15. apríl sl. Ungmennaráð 10 sveitarfélaga á svæðinu tóku þátt í því ásamt starfsmönnum sínum. Tilgangur ungmennaþinganna er að tengja ungmenni sveitarfélaganna saman, skapa tengsl á milli starfsmanna og hjálpa ráðunum að koma á framfæri sínum helstu óskum bæði sem heild og hvert í sínu lagi.
Fyrri dagurinn fór í að hrista hópinn saman með leikjum og heimsókn í Sjóböðin. Þingið sjálft var svo haldið seinni daginn þar sem fulltrúar ungmennaráðanna hlýddu á fyrirlestra og unnu verkefni á borðum með aðstoð starfsmanna. Fulltrúum var blandað á borðin þannig að engir úr sama ungmennaráðinu sátu saman.
Ungmennaráðin unnu svo ákveðinn óskalista með sínum starfsmanni sem komið verður á framfæri í stjórnsýslu sveitarfélaganna og að lokum var samþykkt ályktun sem send verður út síðar.
Mikið átak hefur verið í gangi á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtaka undanfarið varðandi starfsemi ungmennaráða almennt en þau eru komin mjög misjafnlega á veg í sínu starfi. Hjá sumum sveitafélögum er starfsemin lítil sem engin en hjá öðrum er hún blómleg og vaxandi, enda ungmenni hvers sveitarfélags framtíð þess og eðlilegt að þau fái eitthvað um þá framtíð sína að segja. Hér í Eyjafjarðarsveit hefur starfsemin verið að styrkjast og ungmennaráð að fá sinn trausta stall í stjórnkerfinu.