Ungmenni úr Eyjafjarðarsveit í Litháen

Fréttir

Félagsmiðstöðvarnar í Eyjafjarðarsveit, Hörgársveit, Þingeyjarsveit og Grýtubakkahreppi, sem kalla sig North Youth í alþjóðlegu samstarfi (NorðUNG á íslensku), taka sameiginlega þátt í verkefni sem styrkt er úr Erasmus+ verkefnasjóði Evrópusambandsins. Samstarfsaðilar í verkefninu koma frá Guldborgsund í Danmörku, Rostock í Þýskalandi og Palanga í Litháen.

Í síðustu viku kom um 40 manna hópur ungmenna ásamt 12 leiðtogum saman í ungmennaskiptaverkefni í Litháen. Frá Íslandi fóru 8 ungmenni ásamt tveimur fararstjórum og dvöldu þar í eina viku. Hópurinn bjó saman, og tók þátt í ýmsum viðburðum ásamt jafningjum sínum frá Danmörku, Þýskalandi og Litháen. Þau tóku þátt í vinnusmiðjum sem snerust um sjálfbærni og loftslagsmál, tóku þátt í hópverkefnum og fóru saman í skoðunarferðir.

Úr Eyjafjarðarsveit fóru þau Kristín Harpa Friðriksdóttir og Haukur Skúli Óttarsson. Fararstjórnar voru þau Kolbrún Lind Malmquist úr Hörgársveit og Bjarni Arason frá Grýtubakkahreppi.

Á næsta ári mun hópurinn í verkefninu hittast á Íslandi og heimsækja Norðurland í vikutíma. Félagsmiðstöðvarnar í North Youth samstarfinu munu hafa veg og vanda af undirbúningi heimsóknarinnar og er að sögn fararstjóranna úr Litháenferðinni mikill spenningur meðal erlendu samstarfsaðilanna fyrir því að koma til Íslands.