Útboð – matseld fyrir mötuneyti Eyjafjarðarsveitar 2026-2029

Fréttir

Eyjafjarðarsveit óskar eftir tilboðum í matseld fyrir mötuneyti Eyjafjarðarsveitar 2026-2029. Matseld skal fara fram í mötuneyti Hrafnagilsskóla og útvegar verkkaupi öll áhöld og tæki til verksins og skal bjóðandi kynna sér aðstæður.

Verktaki skal sjá um alla stjórnun, matseld, innkaup og annað sem þarf til að útbúa hádegismat fyrir um 300 - 350 manns daglega.

Yfirlit yfir helstu tímasetningar o.fl.:

  • Afhending útboðsgagna: mars 2026
  • Fyrirspurnarfrestur til og með: mars 2026
  • Svarfrestur fyrirspurna til og með: mars 2026
  • Opnunartími tilboða: mars 2026 kl. 13:30
  • Opnunarstaður tilboða: Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar að Skólatröð 9, 605 Akureyri
  • Gildistími tilboða til og með: apríl 2026
  • Upphaf verktíma: ágúst 2026
  • Samningstími: 3 ár
  • Framlenging samnings: 1-2 ár ef báðir aðilar samþykkja

 

Útboðsgögn eru afhent rafrænt og skal óska eftir þeim með tölvupósti á sveitarstjori@esveit.is og merkja skilmerkilega í haus „ósk um útboðsgögn vegna mötuneytis“.