Fréttayfirlit

Álagningarseðlar fasteignagjalda

Álagningarseðlar fasteignagjalda fyrir árið 2021 eru nú aðgengilegir á island.is.
08.02.2021
Fréttir

Ræktin opnar á mánudaginn

Líkamsræktaraðstaðan mun opna aftur á mánudaginn. • Það þarf að bóka tíma með því að hringja í síma 464-8140 • Hámark 2 í einu, nema ef um er að ræða fjölskyldu eða vini þá er leyfilegt að vera fleiri saman Tímarnir eru klukkutíma tímar sem byrja á heila tímanum, nema á morgnana en þá er tíminn kl 6:30-8:00
05.02.2021
Fréttir

Árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla

Fimmtudaginn 11. febrúar næstkomandi verður árshátíð miðstigs Hrafnagilsskóla. Nemendur miðstigs bjóða til sölu ,,heimabíópakka” sem inniheldur slóð á stuttmyndina, rafræna leikskrá, hugmyndir að góðu heimakvöldi og óvæntan glaðning. Pakkinn kostar 1.000 krónur og pantanir þurfa að berast til Nönnu á nanna@krummi.is í síðasta lagi miðvikudaginn 10. febrúar.
03.02.2021
Fréttir

Fundarboð 560. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

FUNDARBOÐ. 560. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 1, Skólatröð 9, 4. febrúar 2021 og hefst kl. 15:00.
03.02.2021
Fréttir

Hacking Norðurland- MATUR-VATN-ORKA

Lausnamót Hacking Norðurland er lausnamót sem fer fram dagana 15.-18. apríl 2021 á Norðurlandi. Unnið verður með sjálfbæra nýtingu auðlinda svæðisins með tilliti til matar, vatns og orku. Markmið lausnamótsins er að efla frumkvöðlastarf og sköpunarkraft á svæðinu og þannig stuðla að nýjum verkefnum og viðskiptatækifærum. Lausnamótinu er ekki síður ætlað að vekja athygli á því öfluga frumkvöðlasamfélagi sem er á Norðurlandi. Hacking Norðurland er samstarfsverkefni Hacking Hekla, Eims, Nordic Food in Tourism, SSNE, SSNV og Nýsköpun í norðri. Íslandsbanki styrkir verkefnið.
01.02.2021
Fréttir

Björk, Eyjafjarðarsveit - skipulagslýsing deiliskipulags

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 14. janúar sl. að vísa skipulagslýsingu fyrir íbúðarsvæði í landi Bjarkar í lögformlegt kynningarferli.
01.02.2021
Deiliskipulagsauglýsingar

Kotra, Eyjafjarðarsveit – tillaga að deiliskipulagi fyrir þriðja áfanga íbúðarsvæðis í landi Kotru.

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 14. janúar 2021 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir þriðja áfanga íbúðarsvæðis í landi Kotru í Eyjafjarðarsveit.
01.02.2021
Deiliskipulagsauglýsingar

Kæru sveitungar

Á næstu dögum ætla nemendur í 10. bekk í Hrafnagilsskóla að fara um sveitina og bjóða til sölu eldhús- og klósettpappír. Einhverjir ætla frekar að hringja á bæina á svæðunum sínum og taka niður pantanir. Ef þið eruð svo óheppin að vera ekki heima þegar þeir koma eða hringja, en hafið áhuga á að styrkja ferðasjóðinn þeirra, getið þið hringt í skiptiborð skólans 464-8100 og pantað pappír hjá Nönnu ritara. Fyrirfram þakkir og bestu kveðjur, nemendur í 10. bekk í Hrafnagilsskóla
26.01.2021
Fréttir

Frá Framsóknarfélagi Eyjafjarðarsveitar

Í mars verður póstkosning þar sem kosið verður um sex efstu sætin á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar 25. september 2021. Þeir sem vilja hafa áhrif þurfa að vera skráðir í Framsóknarflokkinn og eiga lögheimili í kjördæminu. Hægt er að skrá sig í flokkinn fram á föstudag 29. janúar – kjörskráin lokar um miðnætti þann 29. jan. Hægt er að skrá sig með rafrænum skilríkjum https://framsokn.is/ganga-i-flokkin/
26.01.2021
Fréttir

Bókasafn Eyjafjarðarsveitar

Á safninu er fjöldi bóka, tímarita og upplýsingaefnis, bæði til útláns, lestrar og skoðunar á staðnum. Komið við á bókasafninu og kynnið ykkur hvað þar er að finna. Nú er safnið opið fyrir almenning sem hér segir: Þriðjudagar frá 16:00-19:00 Miðvikudagar frá 16:00-19:00 Fimmtudagar frá 16:00-19:00 Að sjálfsögðu ber að viðhafa þær varúðarráðstafanir sem mögulegt er, t.d. handþvott og sprittun áður en komið er inn á safnið og áður en farið er út aftur og tveggja metra regluna. Þær bækur sem koma inn eru sótthreinsaðar eins og kostur er og fara ekki í útlán strax. Bókasafnið er staðsett í kjallara íþróttahúss Hrafnagilsskóla og er gengið inn að austan. Ekið er niður með skólanum að norðan.
20.01.2021
Fréttir