Auglýsingablað 1328. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 17. mars 2026.

Óskað eftir umsóknum um styrk til menningarmála
Velferðar-& menningarnefnd vekur athygli á því að hægt er að sækja um styrk til menningarmála hér á heimasíðu sveitarfélagsins. Rafrænt eyðublað má finna á hlekknum hér í fréttinni og undir dálknum stjórnsýsla – skjöl og útgefið efni – umsóknir.
Rafrænt eyðublað:
https://www.esveit.is/is/stjornsysla/skjol-og-utgefid-efni/eydublod/umsokn-um-styrk-til-menningarmala
Úthlutunarreglur menningarsjóðsins:
https://www.esveit.is/static/files/Samthyktir/2025-menningarsjodur-uthlutunarreglur.pdf
Opið verður fyrir umsóknir fram að næstu mánaðarmótum.

Minnum á Iðunnarkvöldið á morgun 18. mars – Súrdeigsbakstur 😊
Það verður kynnt hvernig á að baka einfalt hnoðlaust súrdeigsbrauð og svo smakkað á einu slíku.
Staðsetning: kennslueldhús Hrafnagilsskóla
Klukkan: 20:00
Hlökkum til að sjá sem flestar 😊
Nýjar konur velkomnar.
Kvenfélagið Iðunn.

Stóriboli með tónleika á Leyni 21/3.
Hljómsveitin Stóriboli sem er með aðsetur í Eyjafjarðarsveitinni heldur tónleika á Leyni í Göngugötunni á Akureyri laugardagskvöldið 21/3 kl. 21:00.
Hljómsveitina skipa þeir Helgi og Bergsveinn Þórssynir frá Kristnesi, Hafþór Önundarson frá Syðri-Tjörnum og Agnar Sigurðarson frá Svalbarðsströndinni.
Þessir kumpánar kynntust fyrir nokkrum misserum hjá Freyvangsleikhúsinu og hafa æft saman um nokkra hríð og hafa barið saman fullt af rokki og róli. Hafþór mun einn og sér hita upp fyrir Stórabola, með frumsömdum kassagítar smellum. (Stóriboli var fyrst nefndur Kuldaboli en það er löngu úrelt).
Allir velkomnir.

Messa í Möðruvallakirkju sunnudaginn 22. mars kl. 13:00
Boðunardags Maríu meyjar minnst í tali og tónum. Kirkjukór Grundarsóknar syngur undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar organista. Prestur Aðalsteinn Þorvaldsson og meðhjálpari Helga Berglind Hreinsdóttir.
Verið öll hjartanlega velkomin!

Aðalsafnaðarfundur Grundarsóknar í Sólgarði, 25. mars kl. 20:00
Venjulega aðalfundarstörf.
Sóknarnefndin.

Bókaklúbburinn hittist á bókasafninu 5. mars og ræddi bækur febrúarmánaðar eftir Claire Keegan sem komið hafa út á íslensku;
Seint og um síðir, Smámunir sem þessir og Fóstur. Bækurnar fengu þá umsögn að vera vel skrifaðar. Þær lýsa lífi fólks á Írlandi á síðustu öld, þar sem kaþólska kirkjan hefur ægivald, vakir yfir og stýrir lífi fólks í fátæku samfélagi. Klúbbmeðlimum þótti Smámunir sem þessir einstaklega áhrifarík þar sem í bakgrunni er saga ógiftra stúlkna og kvenna sem verða óléttar og eru vistaðar hjá nunnum þar til þær hafa eignast börnin sem eru svo tekin frá þeim og gefin til ættleiðingar.
Bók mars mánaðar er Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafsdóttur.
Síðasti fundur vetrarins er ráðgerður 9. apríl.