Auglýsingablað 1331. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 7. apríl 2026.

Laus staða stoðkennara við Hrafnagilsskóla
Stoðkennari á yngsta stigi
Leitað er eftir kennara í 100% starf stoðkennara við Hrafnagilsskóla. Stoðkennari á yngsta stigi er sinnir námsstuðningi við nemendur, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vinnur jafnframt í teymi á yngsta stigi og í stoðteymi skólans.
Sjá auglýsingu á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl 2026.

Langar þig til að vinna í rólegu umhverfi í nýjum skóla? Þá gæti Krummakot verið góður kostur 😃
Lausar eru stöður deildarstjóra og leikskólakennara.
Sjá auglýsingu á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Frekari upplýsingar veita Erna Káradóttir eða Sigþóra Baldursdóttir í síma 464-8120, netföng; erna@krummi.is – sigtora@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til 1. maí.

Síðasti fundur vetrarins verður fimmtudaginn 9. apríl kl. 16:30 á bókasafni Eyjafjarðarsveitar
Síðast hittist bókaklúbburinn 5. mars og ræddi bækur febrúarmánaðar eftir Claire Keegan sem komið hafa út á íslensku; Seint og um síðir, Smámunir sem þessir og Fóstur. Bækurnar fengu þá umsögn að vera vel skrifaðar. Þær lýsa lífi fólks á Írlandi á síðustu öld, þar sem kaþólska kirkjan hefur ægivald, vakir yfir og stýrir lífi fólks í fátæku samfélagi. Klúbbmeðlimum þótti Smámunir sem þessir einstaklega áhrifarík þar sem í bakgrunni er saga ógiftra stúlkna og kvenna sem verða óléttar og eru vistaðar hjá nunnum þar til þær hafa eignast börnin sem eru svo tekin frá þeim og gefin til ættleiðingar.
Bók mars mánaðar er Þú sem ert á jörðu eftir Nínu Ólafsdóttur.