Auglýsingablað 1333. tbl. 17. árg. þriðjudaginn 21. apríl 2026.

Laus staða íþróttakennara í Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit
Við óskum eftir að ráða íþróttakennara í 80-100% starf frá og með 1. ágúst 2026. Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár og er íþróttakennsla u.þ.b. 60% af starfinu. Önnur kennsla getur verið eftir áhugasviði og sérmenntun viðkomandi.
Laun kennara eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Upplýsingar veita skólastjórnendur; Ólöf Ása Benediktsdóttir og Björk Sigurðardóttir í síma 464-8100. Sótt er um störfin með því að senda umsókn, ferilskrá og greinagerð á netföngin; asa@krummi.is eða bjork@krummi.is
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2026.
Nánari upplýsingar á esveit.is.

Kvenfélagið Iðunn býður á Iðunnarkvöld þriðjudaginn 21. apríl kl. 20:00
Við hittumst í fundarherbergi Iðunnar á efri hæðinni í Laugarborg.
Boðið verður upp á stutt stólajóga, hressingu og samtal um gagnsemi gervigreindar í leik og starfi.
Nýjar konur eru alltaf velkomnar.

Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2026 verður haldinn fimmtudagskvöldið 23. apríl, kl. 20:00 á Ytra-Gili. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Athugið að framboðsfrestur til stjórnar rennur út viku fyrir aðalfund.
Veitingar verða í boði og vonumst við til að sjá sem flesta. Nýir félagar eru boðnir velkomnir.
Bestu kveðjur,
Stjórn Hjálparsveitarinnar Dalbjargar.
Vorferð Félags eldri borgara í Eyjafjarðarsveit 27. - 30. maí
Fyrirhugað er að fara í ferð um Borgarfjarðarhérað og nágrenni þar sem gist verður í Borgarnesi.
Héraðið verður skoðað með staðkunnugum leiðsögumönnum, þeim Gísla Einarssyni og Guðmundi Hallgrímssyni. Á leiðinni suður munum við fá leiðsögn Magnúsar Ólafssonar sem fer með okkur um Vatnsdal og fræðir okkur um sögu Friðriks og Agnesar morðingja Natans Ketilssonar.
Gisting, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður er innifalið í verðinu sem og aðgangur að söfnum.
Áætlað verð ferðarinnar er 130 þúsund krónur á mann miðað við að gist sé í tveggja manna herbergi.
PS - Hægt er að skrá sig á sýninguna Mister Skallagrímsson í Landnámssetrinu en sú sýning er ekki innifalin. Verð hvers miða er 6900 kr.
Skráning er til 5. maí hjá Sveinbjörgu í síma 8463222, Leifi í síma 8948677 og Páli í síma 6617627.
Hafdals hótel óskar eftir að ráða starfskraft til starfa í sumar
Um er að ræða 50-60% starf við þrif og fleira. Upplýsingar í síma 898-8347 eða með tölvupósti á hafdals@hafdals.is.


Skráning nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla, vorið 2026
Dagana 4. – 8. maí stendur yfir skráning nýrra nemenda í Hrafnagilsskóla. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að skrá nemendur í verðandi 1. bekk (börn fædd 2020) og einnig aðra nýja nemendur sem væntanlegir eru í skólann næsta haust.
Á sama tíma er tekið á móti tilkynningum um flutning nemenda af svæðinu.
Þeir sem ætla að notfæra sér frístund næsta vetur (fyrir nemendur í 1.- 4. bekk) eru beðnir að tilkynna það þessa sömu daga, skráning er ekki bindandi.
Skráning fer fram hjá ritara skólans á virkum dögum milli kl. 9:00-14:00 í síma 464-8100.
Skólastjóri

Ungmennaþing SSNE á Húsavík
Ungmennaþing SSNE var haldið á Húsavík 14. og 15. apríl sl. Ungmennaráð 10 sveitarfélaga á svæðinu tóku þátt í því ásamt starfsmönnum sínum. Tilgangur ungmennaþinganna er að tengja ungmenni sveitarfélaganna saman, skapa tengsl á milli starfsmanna og hjálpa ráðunum að koma á framfæri sínum helstu óskum bæði sem heild og hvert í sínu lagi.
Nánar má lesa um þingið á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar.
Mikið átak hefur verið í gangi á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og landshlutasamtaka undanfarið varðandi starfsemi ungmennaráða almennt en þau eru komin mjög misjafnlega á veg í sínu starfi. Hjá sumum sveitafélögum er starfsemin lítil sem engin en hjá öðrum er hún blómleg og vaxandi, enda ungmenni hvers sveitarfélags framtíð þess og eðlilegt að þau fái eitthvað um þá framtíð sína að segja. Hér í Eyjafjarðarsveit hefur starfsemin verið að styrkjast og ungmennaráð að fá sinn trausta stall í stjórnkerfinu.
Norðurþing, 15. apríl 2026
Ályktun Ungmennaþings SSNE 2026
Ungmennaþing SSNE 2026 skorar á sveitarstjórnir og framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra að tryggja að ungmennaráð verði virkur og eðlilegur hluti af ákvarðanatöku sveitarfélaga.
Ungt fólk vill taka þátt, láta í sér heyra og hafa áhrif — sérstaklega í málefnum sem snerta líf þeirra, aðstæður og framtíð. Ungmennaráð eru mikilvægur vettvangur fyrir slíka þátttöku og eiga ekki að vera til málamynda heldur raunveruleg rödd í stjórnsýslu sveitarfélaga.
Ungmennaþingið leggur áherslu á að: Ungmennaráð fái skýrt hlutverk og raunverulegt umboð, ungmennaráð séu höfð með í ráðum þegar fjallað er um málefni sem varða börn og ungmenni, skýrar boðleiðir séu milli ungmennaráða, nefnda og sveitarstjórna og að tekið sé mark á tillögum og sjónarmiðum ungmennaráða, með skýrum svörum og eftirfylgni.
Ungmennaþing SSNE hvetur framboð til sveitarstjórna til að gera þátttöku ungmennaráða að skýrum hluta af stefnu sinni og sýna í verki að rödd ungmenna skiptir máli. Virkt lýðræði byggir á því að ungt fólk hafi tækifæri til að hafa áhrif – ekki aðeins í framtíðinni, heldur hér og nú.