Deildarstjórar - Framtíðarstarf

Fréttir

LEIKSKÓLINN KRUMMAKOT Í HRAFNAGILSHVERFI VILL RÁÐA DEILDARSTJÓRA Í FRAMTÍÐARSTARF.
Um er að ræða tvær 100% stöður deildarstjóra í yngstu deildir leikskólans þar sem að jafnaði eru um 10-12 börn. Í leikskólanum er 100% stöðugildi skipulagt sem 37 klukkustundir á viku.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar.
Á Krummakoti eru 65 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára. Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð (story line) og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman.

Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem stefnt er á að opna árið 2024 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.

VIÐ MAT Á UMSÓKNUM ER HORFT TIL EFTIRFARANDI:

  • Leyfisbréf sem leikskólakennari, uppeldismenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
  • Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is.
Umsóknarfrestur er til 17. júní 2022.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur.
Umsóknir skal sendist til leikskólastjóra á netfangið erna@krummi.is.