Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar 2025-2037 - kynning vinnslutillögu

Fréttir Skipulag í vinnslu Aðalskipulagsauglýsingar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á 671. fundi sínum 17.02.2026 að kynna vinnslutillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025–2037 í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulag er stefnumótandi áætlun fyrir allt sveitarfélagið þar sem mörkuð er stefna um m.a. landnotkun, byggðaþróun, samgöngur og umhverfismál.

Opinn íbúafundur verður haldinn í matsal Hrafnagilsskóla, Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi kl. 17:00 miðvikudaginn 25. febrúar 2026. Þar munu fulltrúar sveitarfélagsins og skipulagshönnuðir kynna vinnslutillöguna og svara fyrirspurnum.

Vinnslutillagan er aðgengileg í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 759/2025 og jafnframt er hægt að kynna sér gögn á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 auk þess sem þau eru aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins. Fyrirspurnir má einnig senda á sbe@sbe.is.

Ábendingar og athugasemdir skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 5. mars 2026.

 

Skýringaruppdráttur 1 - Náttúruvernd

Sveitarfélagsuppdráttur 1 - Norður

Sveitarfélagsuppdráttur 2 - Suður 

Sveitarfélagsuppdráttur 3 - Heild

Greinargerð - Stefnumörkun

Forsendur - umhverfisskýrsla