Fréttayfirlit

Opinn fundur með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit um viðburðahald

Eyjafjarðarsveit boðar til opins fundar með félagasamtökum í Eyjafjarðarsveit þar sem rætt verður um viðburðahald í sveitarfélaginu. Umræðuefnið verður: • Hvað viðburðir eru í gangi í dag? • Hugmyndir félaga að viðburðum og verkefnum. • Hvað geta félögin lagt af mörkum. • Samstarf, tímasetningar og leiðir. Fulltrúar SSNE munu stýra umræðum og í lok fundar verða næstu skref ákveðin í sameiningu. Fundurinn verður haldinn í Félagsborg, miðvikudaginn 18. nóvember kl. 19.30. Félögin eru hvött til þess að senda sína fulltrúa á fundinn og taka þátt í mótun hugmynda að eflingu viðburðahalds í sveitarfélaginu.
06.11.2026
Fréttir

Syðri-Varðgjá íbúðarsvæði, Eyjafjarðarsveit – auglýsing tillögu

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 15. október sl. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (L152799) skv. 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir um 9 ha svæði í landi Syðri-Varðgjár ofan Veigastaðavegar og er á íbúðarsvæði ÍB35 í aðalskipulagi. Skipulagssvæðið afmarkast af Veigastaðavegi í vestri og nær þaðan til austurs upp í Vaðlaheiði. Mörkin í norðri eru við landamerki Ytri-Varðgjár og í suðri liggja mörkin við landamerki Kotru og Smáralæks. Á svæðinu eru uppi áform um að byggja 15 íbúðarhús með aðkomu frá Veigastaðavegi.
03.11.2026
Fréttir