Fréttayfirlit

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst 2026 hófst þann 27. júlí 2026. Upplýsingar um staðsetningu og opnunartíma er að finna HÉR  Athugið að upplýsingar geta breyst án fyrirvara. Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum við kosninguna. Nálgast má ýmsar almennar upplýsingar og leiðbeiningar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar á vef landskjörstjórnar.
31.07.2026
Fréttir

Kæru bændur og landeigendur

Bændadagar í Eyjafjarðará sumarið 2026 eru sem hér segir: 4. ágúst og 1. september nk. Bændum er þá heimilt að veiða fyrir sínu landi enda sé þá öllum veiðireglum árinnar fylgt. Með veiðikveðju, stjórnin. Eyjafjarðará, mynd af síðunni eyjafjardara.is
31.07.2026
Fréttir

Sumarlokun hjá Eyjafjarðarsveit og Skipulags- og byggingarfulltrúa

Sumarlokun hjá Eyjafjarðarsveit og Skipulags- og byggingarfulltrúa. Skrifstofur Eyjafjarðarsveitar og Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar verða lokaðar frá 20. júlí til og með 3. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks.
17.07.2026
Fréttir

Auglýst eftir metnaðarfullum frístundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina

Laus er staða frístundaleiðbeinanda við Félagsmiðstöðina Hyldýpi í Eyjafjarðarsveit. Hyldýpi heldur úti frístundastarfi fyrir börn og unglinga á mið- og unglingastigi Hrafnagilsskóla. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september 2026.
07.07.2026
Fréttir