Fréttayfirlit

Sundlögin okkar    

Karlakór Eyjafjarðar heldur tónleika í sundlauginni í Hrafnagilshverfi fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20.00. Tónleikarnir eru styrktir af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Þeir eru hluti af dagskrá "Sundlaugasumars 2026" en verkefnið var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugarmenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. Aðgangur er ókeypis og geta gestir annað hvort verið í sundlaug eða pottum - á meðan "húsrúm leyfir," eða staðið á sundlaugarbakkanum.
10.08.2026
Fréttir

Tvær íbúðir til leigu í Skólatröð

Eyjafjarðarsveit auglýsir til leigu íbúð fyrir eldri borgara í raðhúsinu að Skólatröð 6. Þá er auglýst til leigu íbúð á annarri hæð í Skólatröð 7. Leigist hún út sem almenn leiguíbúð.
07.08.2026
Fréttir

Fram í fjörð 2026

Sjá nánar hér....
07.08.2026
Fréttir

Gangnaseðlar 2026 UPPFÆRT

Gangnaseðlar 2026 vegna sauðfjár liggja nú fyrir og má nálgast hér fyrir neðan.
07.08.2026
Fréttir

Álagning fjallskila 2026

Þeir sem halda allt sauðfé og öll hross heima eru beðnir að tilkynna það til skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í seinasta lagi fimmtudaginn 6. ágúst með tölvupósti á póstfangið esveit@esveit.is eða í síma 463-0600. Berist ekki tilkynning er gert ráð fyrir að sauðfé/hrossum hafi verið sleppt á afrétt. Lagt verður á eftir forðagæsluskýrslum þeirra sem sleppa á afrétt.
04.08.2026
Fréttir