Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á 680. fundi sínum þann 20.08.2026 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2025–2037 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagið er stefnumótandi áætlun fyrir allt sveitarfélagið þar sem mörkuð er stefna um m.a. landnotkun, byggðaþróun, samgöngur og umhverfismál. Samhliða er auglýst tillaga að forsendum og umhverfisskýrslu skv. 15. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 111/2021.
Tillögurnar eru aðgengilegar í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 759/2025 og jafnframt er hægt að kynna sér gögn á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 auk þess sem þau eru aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins: www.esveit.is. Fyrirspurnir um málið má senda á sbe@sbe.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir við tillögurnar. Ábendingar og athugasemdir þurfa að vera skriflegar og skulu berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 7. október 2026.