Brúarland og Brúnagerði – auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 20.08.2026 breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna Brúarlands (ÍB15) og breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar Brúnagerðis, áfanga A og B samkvæmt 32., 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Athugasemdir bárust á auglýsingartímabili skipulagstillaganna og má sjá afgreiðslu sveitarstjórnar í fundargerð á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is undir málum nr. 333/2025 og 1107/2025.

Aðal- og deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 30., 31., 32., 40., 41., og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

F.h. Eyjafjarðarsveitar,
Skipulags- og byggingarfulltrúi