Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 23.10.25 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 og breytingu á deiliskipulagi vegna Leifsstaða 2, verslunar- og þjónustusvæðis skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Aðalskipulagsbreytingin felst í því að afmörkun verslunar- og þjónustusvæðis er breytt og minnkar úr 9,6 ha í 8,5 ha, skilmálar greinargerðar eru uppfærðir, heimilt byggingarmagn er aukið og gert ráð fyrir auknum fjölda gistiplássa. Deiliskipulagsbreytingin felur i sér að fjölga heimiluðum gistieiningum úr 154 í 368 með nýrri hótelbyggingu og fjölgun smáíbúða og lítillega stækkun skipulagssvæðis.
Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerum 337/2025 og 338/2025. Hægt er að skila inn athugasemdum við skipulagstillögurnar á Skipulagsgáttinni og er athugasemdafrestur til 17. apríl 2026. Frekari upplýsingar má nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.
Tillaga Leifsstaðir 2 - verslunar- og þjónustusvæði - greinargerð og umhverfismatsskýrsla
Deiliskipulag Leifsstaða 2 - verslunar og þjónustusvæði
Deiliskipulag Leifsstaða 2 - skýringaruppdráttur
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar