Leifsstaðir II, aðal- og deiliskipulagsbreyting – auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 29.10.2026 breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna Leifsstaða II (VÞ4) og breytingu á deiliskipulagi Leifsstaða II, verslunar- og þjónustusvæðis samkvæmt 32., 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Athugasemdir bárust á auglýsingartímabili skipulagstillaganna og má sjá afgreiðslu sveitarstjórnar í fundargerð á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is undir málum nr. 337/2025 og 338/2025.

Aðal- og deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 30., 31., 32., 40., 41., og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.

F.h. Eyjafjarðarsveitar,

Skipulags- og byggingarfulltrúi