Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 26.03.2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir flugskýli á Melgerðismelum, skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í tillögunni felst að afmarkaðar eru fimm nýjar lóðir fyrir flugskýli, hver um sig 1.200 m² að stærð, auk einnar núverandi lóðar sem er 1.540 m². Gert er ráð fyrir byggingarreitum, aðkomu og skilmálum fyrir uppbyggingu á svæðinu. Heimilt verður að reisa eitt flugskýli á hverri lóð, á einni hæð með millilofti, að hámarki 400 m² að grunnfleti og allt að 6,5 m á hæð. Skipulagssvæðið nær yfir um 1,0 ha svæði sunnan núverandi flugskýlis, á milli lendingarstaðar og flugvallar fyrir minni flugvélar. Markmið deiliskipulagsins er að móta heildstæða umgjörð um uppbyggingu flugskýla á svæðinu með afmörkun lóða, skilgreiningu byggingarreita og aðkomu, ásamt skilmálum um mannvirki og landnýtingu.
Skipulagstillagan er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9, hér á heimasíðu sveitarfélagsins, www.esveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmer 1120/2025. Hægt er að skila inn athugasemdum við skipulagstillöguna á Skipulagsgáttinni og er athugasemdafrestur til 15.05.2026. Frekari upplýsingar má nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.
Melgerdismelar-flugskyli_deiliskipulag-greinargerd-tillaga-2026-03-26
Melgerdismelar-flugskyli-deiliskipulag-tillaga_uppdrattur-2026-03-26
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar