Undirbúningur er hafinn að stefnumótun fyrir Sóknaráætlun Norðurlands eystra 2015-2019, í samræmi við samning milli ríkisins og Eyþings. Opnir fundir verða haldnir til að ræða framtíð svæðanna og landshlutans og safna hugmyndum og forgangsraða þeim.
Á annað hundrað umsóknir bárust Handverkshátíð og hefur þeim nú öllum verið svarað.
Tæplega 100 aðilar taka þátt í ár og enn og aftur getum við lofað fjölbreyttri og spennandi hátíð. Aldrei fyrr hafa svo margir nýir sýnendur verið meðal umsækjenda.
Fjölbreytt dagskrá í boði víðsvegar um sveitina. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Komdu og njóttu sumardagsins fyrsta með okkur í Eyjafjarðarsveit.
Heimaþjónusta Eyjafjarðarsveitar óskar eftir starfsfólki í heimaþjónustu. Starfið felst í tiltekt og þrifum inni á heimilum nokkrar klukkustundir á viku.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar í s. 463-0600 eða í tölvupósti á netfangið esveit@esveit.is.
Eldri starfsumsóknir óskast endurnýjaðar.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
Eyjafjarðarsveit býður unglingum fæddum 1999, 2000 og 2001 vinnu við umhverfisverkefni á komandi sumri. Starfið hefst 8. júní. Umsækjendur þurfa að skila inn umsóknum fyrir 4. maí á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar eða á netfangið esveit@esveit.is. Í umsókninni þarf að koma fram nafn og kennitala umsækjanda, nafn forráðamanns og sími. Upplýsingar um vinnutíma og laun verða birt á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar þegar nær dregur.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
Frestur til að innrita hefur verið framlengt til 1. maí og fer hún fram á heimasíðu skólans.
Núvernadi nemendur sem ætla að halda áfram þurfa einnig að skrá sig.
Frekari upplýsingar er hægt að fá í síma skólans 464-8110 eða í farsíma skólastjóra 868-3795.
Smámunasafnið er opið á sumardaginn fyrsta, 23. apríl frá kl. 11:00 – 17:00.
Safnið er ekki minjasafn, landbúnaðarsafn, verkfærasafn, búsáhaldasafn, naglasafn, járnsmíðasafn eða lyklasafn heldur allt þetta og meira til.
Sýning er í anddyrinu á munum sem unnir hafa verið af vinnuhópi kringum altarisklæðið frá Miklagarði. Sýningin er styrkt af Menningarráði Eyþings og Menningarmálanefnd Eyjafjarðarsveitar.
Hinir árlegu vortónleikar Karlakórs Eyjafjarðar verða haldnir í Glerárkirkju fimmtudaginn 30. apríl og tónlistarhúsinu Laugarborg föstudaginn
1. maí. kl.20:30.
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá.
Stjórnandi: Petra Björk Pálsdóttir.