Veðrið leikur við okkur á degi uppsetningar
Nú er allt komið á fullt við uppsetningu á
sýningarsvæði Handverkshátíðar við Hrafnagilsskóla - það er hreint yndislegt að kíkja þangað á degi
uppsetningar, brosandi andlit sveitunga og sýnenda mæta manni alls staðar á iðandi sýningarsvæðinu, margar hendur vinna létt verk er
það sem gildir - vá stemningin. Veðrið gæti ekki verið betra - logn, léttskýjað og 17 stiga hiti - veðurspáin lofar
fínu veðri hátíðardagana. Þið getið nálgast dagskrá hátíðarinnar hér á heimasíðu
hátíðarinnar undir Dagskrá
Opið klukkan 12-19 á morgun föstudag, laugardag, sunnudag og mánudag.
Handverkshátíðin 2011 verður formlega sett á föstudaginn 5. ágúst n.k. og mun standa til mánudagsins 8.
ágúst.
Heimasíða hátíðarinnar er www.handverkshatid.is og nánari upplýsingar má einnig fá hjá Ester Stefánsdóttur, framkvæmdastjóra hátíðarinnar í síma 824 2116.
Sundlaugin verður opin alla verslunarmannahelgina
laugardag til mánudags frá kl. 10:00 - 20:00.
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
Þung högg eldsmiðsins og háreysti kaupmanna í bakgrunni ásamt sverðaglamri kappsfullra fornmanna blandast hlátrasköllum
barna á MIÐALDADÖGUM á Gásum í Eyjafirði 16.-19. júlí. Þetta er hluti af þeirri miðaldamynd sem gestir geta
upplifað þar. Á MIÐALDADÖGUM færist líf í Gásakaupstað sem var forn verslunarstaður á miðöldum.
Handverksfólk, íklætt miðaldaklæðnaði, vinnur að leður- og vattarsaumi, jurtalitun, reipisgerð, tálgun í tré, spjaldvefnaði,
boga- og örvagerð svo eitthvað sé nefnt.
Eyjafjarðarsveit hefur flutt sveitarskrifstofu sína frá Syðra-Laugalandi í nýuppgert húsnæði
að Skólatröð 9, áður heimavist Hrafnagilsskóla.
Vert er að vekja athygli á nýju símanúmeri skrifstofunnar sem er 463 0600, en netfang skrifstofu er óbreytt, esveit@esveit.is
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar opnar á morgun, þriðjudaginn 21. júní í nýju húsnæði
að Skólatröð 9 (heimavistarhúsi Hrafnagilsskóla).
Nýtt símanúmer skrifstofu verður 463 0600 en í dag má ná í sveitarstjóra Jónas Vigfússon í gsm: 861 8286 og
skrifstofustjóra Stefán Árnason í gsm: 864 6444.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar verður lokuð miðvikudaginn 15. júní og fimmtudaginn 16. júní
n.k. Mánudaginn 20. júní opnar skrifstofan í nýju húsnæði að Skólatröð 9 ( heimavistarhús
Hrafnagilsskóla ). Opnunartími skrifstofu verður óbreyttur þ.e. frá kl. 10 – 14. Nýtt símanúmer
skrifstofu verður 463-0600.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
404. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn að Syðra Laugalandi,
þriðjudaginn 14. júní 2011 og hefst kl. 15:00.
OPIÐ
HVÍTASUNNUDAG 12. JÚNÍ KL. 10:00 – 20:00
ANNAN HVÍTASUNNUDAG 13. JÚNÍ KL. 10:00 – 20:00
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN 17. JÚNÍ KL. 10:00 – 20:00