Viðburðahald - Samantekt eftir opinn fund 12. apríl 2023
Tekin hefur verið ákvörðun um að Handverkshátíðin verður ekki haldin með sama sniði í ár. Haldinn hefur verið fundur með öllum félögum sem áttu fjárhagslegan ávinning af hátíðinni og ljóst að viðburðurinn var orðinn of stór og tímafrekur fyrir þann takmarkaða hóp sjálfboðaliða sem sinntu
lykilhlutverkum. Á fundinum kom þó fram mikill vilji til að halda áfram með einhverskonar viðburð í sveitarfélaginu og nokkrar hugmyndir ræddar en ákveðið að boða til íbúafundar til að fá virkt samtal við íbúa um áframhaldið.
24.04.2023
Fréttir