Jódísarstaðir íbúðarsvæði, Eyjafjarðarsveit – kynning skipulagslýsingar

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann
26. október 2023 að vísa skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna stækkunar íbúðarsvæðis við Jódísarstaði í Eyjafjarðarsveit í kynningarferli skv.
30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í því að íbúðarsvæðið ÍB25 við Jódísarstaði stækkar til norðurs um 4 ha, inn á svæði sem er í dag skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Íbúðarsvæðið ÍB25 er 13,5 ha að stærð skv. gildandi aðalskipulagi en verður 17,5 ha. Vegna stækkunar svæðisins fjölgar íbúðum á svæðinu úr 10 í um 20.
Skipulagslýsingin er aðgengileg á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, milli 8. og 22. nóvember 2023, hér er skipulagslýsingin og einnig á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmeri 787/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri til 22. nóvember 2023. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Skipulagsfulltrúi