Stóri-Hamar 1, Eyjafjarðarsveit – breyting á aðalskipulagi vegna efnistöku

Fréttir

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 12. október 2023 að

vísa tillögu um breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna efnistökusvæðis í landi Stóra-Hamars 1 (L152778), í auglýsingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsverkefnið snýr að því að skilgreina efnistökusvæði í landi Stóra-Hamars 1 sem í gildandi aðalskipulagi er skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Svæðið sem um ræðir er staðsett vestan Eyjafjarðarbrautar eystri. Þá eru sett ákvæði varðandi stærð svæðisins og magn efnis sem heimilt er að taka úr því.

Skipulagstillagan er aðgengileg á skrifstofu sveitarfélagsins frá 15. nóvember til 27. desember 2023 og á vef Skipulagsgáttar www.skipulagsgatt.is undir máli nr. 304/2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til 27. desember 2023 til að gera athugasemdir við tillögurnar. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málinu á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Breyting á aðalskipulagi - Stóri-Hamar 1 - efnistökusvæði

Skipulags- og byggingarfulltrúi