Á sumardaginn fyrsta verður mikið um að vera í sveitinni. Þá munu ferðaþjónustuaðilar, listamenn, bændur og búalið bjóða gestum og gangandi í heimsókn.
Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit verður í Hrafnagilsskóla. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. Þeir sem eiga erfitt með gang mega aka að inngangi skóla.
Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja eða á annan fullnægjandi hátt.
Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464-8100 eða 899-4935.
Kjörstjórnin í Eyjafjarðarsveit 15. apríl 2013; Emilía Baldursdóttir, Ólafur Vagnsson, Níels Helgason
100% stöðu leikskólakennara eða einstaklings með aðra kennara- og/eða uppeldismenntun frá 1. maí n.k.
100% stöðu matráðs frá 1. júní n.k.
100% stöðu leikskólakennara eða einstaklings með aðra kennara- og/eða uppeldismenntun vegna sumarafleysinga frá 1. júní n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir Hugrún Sigmundsdóttir skólastjórnandi í síma 464-8120/ 892-7461, netfang hugruns@krummi.is
Niðurstaða könnunar, um einkennisfjall Eyjafjarðarsveitar, er Kerling sem hlaut 37 atkvæði af 45 sem bárust skrifstofunni. Önnur fjöll sem nefnd voru til sögunnar voru Staðarbyggðarfjall sem fékk 3 atkvæði, Súlur með 2 atkvæði og 1 atkvæði hvert fengu Sigtúnafjall, Torfufell og Gnúpufell. Mörg skemmtileg svör fylgdu atkvæðum og má sjá nokkur þeirra hér fyrir neðan.
Kjörskrá fyrir Eyjafjarðarsveit, vegna alþingiskosninga 27. apríl 2013, liggur frammi á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar að Skólatröð 9 til kjördags, á venjulegum opnunartíma skrifstofunnar, sem er frá kl: 10:00-14:00. Einnig er bent á vefinn www.kosning.is en þar er á auðveldan hátt hægt að nálgast upplýsingar um hvort og hvar einstaklingar eru á kjörskrá.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar 10. apríl 2013
Handverksfólki og hönnuðum gefst kostur á að sækja um sölubás á Handverskhátið 2013. Nú þegar hefur fjöldi umsókna borist.
Umsóknarfrestur rennur út 15. apríl n.k. Vinsamlega fyllið út umsóknareyðublað hátíðarinnar sem er að finna á heimasíðu hennar og/eða hér neðar í auglýsingunni.
Á fundi sveitarstjórnar 27. mars s.l. var samþykkt tillaga skipulagsnefndar um að gera skoðanakönnun til að kanna hug íbúa Eyjafjarðarsveitar um hvert sé einkennisfjall Eyjafjarðarsveitar. Spurningin vaknaði því Bókaútgáfan Tindur vinnur um þessar mundir að bók sem heitir Íslensk bæjarfjöll. Það er því ósk okkar að hvert heimili komi sér saman og sendi sína tilnefningu um einkennisfjall Eyjafjarðarsveitar.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt að fella niður gatnagerðargjald af lóðum við Bakkatröð í Hrafnagilshverfi tímabundið. Þess í stað er óskað eftir tilboðum í byggingarrétt á lóðunum.
Umræður í skipulagsnefnd eru oft líflegar en mikill tími fer í að fjalla um efnistökumál um þessar mundir.
Eftirfarandi limra varð til á fundi skipulagsnefndar í gær.
Eyjafjarðarsveit veitir foreldrum / forráðamönnum barna og ungmenna á aldrinum 6 til 17 ára styrki vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar utan Eyjafjarðarsveitar.
Meginmarkmið er að öllum börnum og ungmennum í Eyjafjarðarsveit verði auðveldað að stunda þær íþróttir/tómstundir sem þau hafa ekki tök á að stunda í sveitarfélaginu. Niðurgreiðslan eykur valfrelsi barna og ungmenna og stuðlar að jöfnuði.