Sumaropnun í Gamla bænum Laufási
Gamli bærinn í Laufási opnar dyr sínar upp á gátt laugardaginn 1. júní kl. 9:00 og býður velkomna alla þá gesti, innlenda og erlenda, sem leggja land undir fót í sumar.
Sunnudaginn 2. júní er tilvalið að gera sér ferð í Laufás því kl. 14:00 til 16:00 verður handverksfólk úr Þjóðháttafélaginu Handraðnum að störfum í Gamla bænum og starfsfólk Pólarhesta koma með hesta og teyma undir ungum gestum á flötinni.
29.05.2013