Syðri-Varðgjá íbúðarsvæði, Eyjafjarðarsveit – kynning skipulagslýsingar
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 17. Febrúar 2026 að vísa skipulagslýsingu, vegna nýs deiliskipulags fyrir íbúðarsvæði í landi Syðri-Varðgjár (L152799) í Eyjafjarðarsveit, í kynningarferli skv. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið nær yfir um 9 ha svæði í landi Syðri-Varðgjár ofan Veigastaðavegar og er á íbúðarsvæði ÍB35 í aðalskipulagi. Skipulagssvæðið afmarkast af Veigastaðavegi í vestri og nær þaðan til austurs upp í Vaðlaheiði. Mörkin í norðri eru við landamörk Ytri-Varðgjár og í suðri liggja mörkin við landamerki Kotru og Smáralæks. Á svæðinu eru uppi áform um að byggja 15-17 íbúðarhús með aðkomuvegi frá Veigastaðavegi
26.02.2026
Fréttir