Fréttayfirlit

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026. Kjörstaður verður í Félagsborg (Skólatröð 9).
07.05.2026
Fréttir

Brúarland, Eyjafjarðarsveit – auglýsing aðal- og deiliskipulagstillögu

Sveitastjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 13.11.2025 að auglýsa breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 vegna Brúarlands og breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar Brúnagerðis, áfanga A og B skv. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Aðalskipulagsbreytingin felst í því að meginhluti tveggja af þremur íbúðarsvæðum að Brúarlandi (ÍB15) yrðu skilgreind sem verslunar- og þjónustusvæði en áformað er að á svæðinu verði rekin gistiþjónusta. Deiliskipulagsbreytingin felst í að skipulagssvæðið, sem nú er skilgreint sem íbúðarbyggð, yrði skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði þar sem 13 lóðir af 15 yrðu nýttar til reksturs gistiþjónustu. Skipulagssvæðið yrði þannig allt skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði að undanskildum lóðum nr. 1 og 15 sem yrðu áfram íbúðarhúsalóðir.
07.05.2026
Fréttir

Hafðu áhrif – taktu þátt og mættu á kjörstað

Sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí 2026 eru tækifæri til að hafa bein áhrif á nærumhverfið og þjónustuna sem skiptir okkur mestu máli í daglegu lífi. Það að nýta kosningaréttinn sinn er sterk leið til að taka þátt í lýðræði og móta framtíð samfélagsins. Þótt það líti stundum út fyrir að atkvæði eins einstaklings skipti litlu máli, þá skiptir fjöldinn máli - og þegar við mætum á kjörstað eykst vægi málefna sem við viljum sjá breytast. Með góðri þátttöku tryggjum við að sveitarfélögin byggi á breiðri og fjölbreyttri rödd íbúa á öllum aldri. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki þegar kemur að hinu daglega lífi íbúa og sjá meðal annars um leik- og grunnskóla, samgöngumál, íþrótta- og æskulýðsmál, samgöngur, húsnæðismál, skipulag hverfa og ýmsa frístundaþjónustu – allt hlutir sem hafa bein áhrif á lífsgæði fólks, þar með talið ungs fólks og innflytjenda. Þegar við kjósum, styrkjum við rödd okkar í ákvarðanatöku og hjálpum sveitarfélögum að taka ákvarðanir sem endurspegla raunverulegar þarfir og væntingar íbúa þeirra. Hafðu áhrif - taktu þátt og mættu á kjörstað!
04.05.2026
Fréttir

Starfsemi Kristnesspítala

Undanfarna mánuði hafa sveitarstjórn og sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar unnið markvisst að því að fara yfir stöðu mála varðandi Kristnesspítala og tók sveitarstjórn málið nú aftur á 676. fundi sínum þann 30.apríl.
02.05.2026
Fréttir

Þormóðsstaðavirkjun í Sölvadal í Eyjafjarðarsveit

Á 676. fundi sínum þann 30.apríl síðastliðinn samþykkti sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samhljóða að ganga að samningi við Arctic Hydro varðandi rannsóknar- og nýtingarleyfi vegna Þormóðsstaðavirkjunar.
02.05.2026
Fréttir