Fréttayfirlit

Fermingar í Eyjafjarðarsveit vorið 2026

Átján fermingarbörn eru fermd þetta vorið í fjórum athöfnum hér í sveit. Allir sveitungar eru velkomnir í stóru athöfnina næstkomandi sunnudag, hvítasunnudag, í Grundarkirkju kl. 11:00. Þar syngur kirkjukór Grundarsóknar undir stjórn Þorvaldar Arnar Davíðssonar. Meðhjálpari er Hjörtur Haraldsson og prestur Jóhanna Gísladóttir.
19.05.2026
Fréttir

Úrslit krakkakosninga í Eyjafjarðarsveit

Ungmennaráði Eyjafjarðarsveitar barst erindi frá Umboðsmanni barna í apríl, þar sem ungmennaráð sveitarfélaga voru hvött til þess að standa fyrir krakkakosningum í sínum sveitarfélögum í samstarfi við nemendaráð og grunnskóla. Þrátt fyrir að erindið hafi borist með stuttum fyrirvara ákvað ungmennaráð að taka þetta verkefni föstum tökum og efna til krakkakosninga meðal nemenda unglingastigs Hrafnagilsskóla. Fimmtudaginn 14. maí, eða tveimur dögum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar, var haldinn framboðsfundur á unglingastigi þar sem fulltrúar framboða til sveitarstjórnar kynntu stefnumál sín og tóku á móti spurningum úr sal. Fyrir hönd K-lista mættu þær Linda Lárusdóttir og Sóley Kjerúlf Svansdóttir, en frá F-listanum tóku þau Hermann Ingi Gunnarsson og Berglind Kristinsdóttir þátt í fundinum. Eftir fundinn var gengið til kosninga í Félagsborg þar sem búið var að útbúa kjörklefa og kjörseðla. Alls greiddu 54 nemendur atkvæði. Niðurstöður kosninganna urðu þær að F-listinn hlaut 38 atkvæði, eða 76% og K-listinn 12 atkvæði eða 24%. Einn seðill var auður og þrír ógildir. Ungmennaráð þakkar frambjóðendum beggja lista fyrir samstarfið í þessu skemmtilega verkefni og þau vilja líka þakka Hans Rúnari Snorrasyni fyrir aðstoðina við úrvinnslu kosninganna.
19.05.2026
Fréttir

Lokafrágangur hafinn í Hrafnagilshverfi – búast má við truflun á umferð

Hafin er vinna við lokafrágang meðfram Hrafnatröð, í Hrafnagilshverfi, sem standa mun fram í miðjan júní. Búast má við óþægindum vegna framkvæmdanna sem fela óhjákvæmilega í sér þrengingar, hjáleiðir og tafir í umferðinni á þessu tímabili en gullfallegu og snyrtilegu umhverfi af framkvæmdum loknum.
18.05.2026
Fréttir

Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Eyjafjarðarsveit 2026

Við sveitarstjórnarkosningar 16. maí 2026 voru 907 á kjörskrá. 679 greiddu atkvæði eða 74,8%, af þeim voru 11 auðir og 1 ógildur.
17.05.2026
Fréttir

Viðbyggingar gamla leikskólans fá nýjan tilgang

Undanfarnar vikur hefur staðið yfir undirbúningur á brottflutningi viðbygginga gamla leikskólans sem í dag voru fluttar á brott.
15.05.2026
Fréttir

Skemmdir á hoppubelgnum

Töluvert hefur borið á skemmdum á hoppubelgnum sem staðsettur er austan megin við íþróttamiðstöðina. Sést hefur til einstaklinga sem gera sér það að leik að fara á hjólum upp á belginn sem stranglega er bannað. Þetta hefur leitt af sér skemmdir, bæði lengri rifur og smærri göt, eitthvað sem sífellt verður erfiðara að gera við eftir því sem þeim fjölgar. Við viljum beina því til forráðamanna barna og unglinga að ræða málin við þau og brýna fyrir þeim að þetta sé ekki heimilt, viljum við hafa belginn í gangi áfram. Starfsfólk íþróttamiðstöðvar
15.05.2026
Fréttir

Efri hæð Hrafnagilsskóla og íþróttamiðstöðvar tekin að rísa

Nú hefur B.Hreiðarsson tekið að reisa efri hæð viðbyggingar Hrafnagilsskóla sem að auki mun hýsa stækkun íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar með glæsilegri líkamsræktaraðstöðu.
14.05.2026
Fréttir

Ársreikningur 2025 lagður fram til síðari umræðu í sveitarstjórn

Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 191,7 m.kr. og rekstrarniðurstaða A hluta jákvæð um 200,6 m.kr. Rekstrargjöld A og B hluta námu samtals 1.732,9 m.kr. Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu tæpum 2,0 milljörðum króna ...
13.05.2026
Fréttir

Fundarboð 677. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

FUNDARBOÐ 677. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, miðvikudaginn 13. maí 2026 og hefst kl. 08:00.
12.05.2026
Fréttir

Eyjafjarðarsveit auglýsir eftir tilboðum í athafnalóðir á Bakkaflöt

Um er að ræða spennandi tækifæri til uppbyggingar á athafnalóðum nærri vaxandi íbúðarbyggð í Hrafnagilshverfi. Nú stendur yfir gatnagerð á svæðinu og er áætlað að henni ljúki sumarið 2027, sem mun styrkja aðgengi og skapa góðar forsendur fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi.
11.05.2026
Fréttir