Fréttayfirlit

Íþróttavika Evrópu haldin í haust

Íþróttavika Evrópu verður haldin 23. – 30. september eins og undanfarin ár. Líkt og áður mun sveitarfélagið halda utan um dagskrá og kynningarmál en áfram verður leitað til þeirra sem halda úti hreyfi- og/eða vellíðunarúrræðum hér í sveit varðandi framkvæmd einstakra viðburða. Íþróttavikan er haldin út um alla Evrópu og er styrkt af Evrópusambandinu í gegn um ÍSÍ og mun Eyjafjarðarsveit sækja um styrk til verkefnisins eins og undanfarin ár. Í fyrra var haldið svokallað „virkniþing“ í fyrsta skiptið og í ár verður haldið áfram að þróa þann viðburð. Þar var einstaklingum og félagasamtökum sem bjóða upp á hreyfi- og vellíðunarúrræði í Eyjafjarðarsveit boðið að kynna sína starfsemi auk þess sem viðburðurinn var útvíkkaður til annarra frjálsra félagasamtaka líka. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í íþróttavikunni er bent á að senda tölvupóst á Karl Jónsson Íþrótta- og tómstundafulltrúa á netfanginu karlj@esveit.is. Einnig má koma hugmyndum að viðfangsefnum íþróttavikunnar þangað líka og sérstaklega varðandi dagskrá virkniþingsins þar sem allar hugmyndir eru vel þegnar.
22.06.2026
Fréttir

Jón Björn Hákonarson ráðinn sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar

Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur ákveðið að ráða Jón Björn Hákonarson í stöðu sveitarstjóra. Jón Björn hefur áratuga reynslu af störfum á vettvangi sveitarstjórnarmála og víðtæka þekkingu á stjórnsýslu, stefnumótun og rekstri sveitarfélaga. Tekur hann við starfinu þann 1. ágúst næstkomandi.
18.06.2026
Fréttir

Fundarboð 679. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

679. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 18. júní 2026 og hefst kl. 08:00
16.06.2026
Fréttir

Mikið líf í Hrafnagilshverfi - Hvetjum íbúa til að fegra nærumhverfið og taka vel á móti gestum

Dagana 26.–28. júní verður líf og fjör í Eyjafjarðarsveit þegar Landsmót UMFÍ 50+ fer fram. Fjölmargir gestir munu sækja sveitarfélagið heim og sunnudaginn 28. júní mun Ungmennafélagið Samherjar fagna 30 ára afmæli sínu með viðburðum sem verða hluti af hátíðarhelginni. Verður það auglýst nánar síðar.
15.06.2026
Fréttir

Fundarboð 678. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

FUNDARBOÐ 678. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 4. júní 2026 og hefst kl. 08:00.
01.06.2026
Fréttir

Lokadagur og skólaslit

Lokadagur nemenda þetta skólaárið er fimmtudagurinn 4. júní og þann dag keyra skólabílar heim kl. 13:00. Frístund er opin fyrir þá sem þar eru skráðir og er það síðasti opnunardagur þessa skólaárs. Skólaslitin fara fram í íþróttahúsinu föstudaginn 5. júní kl. 18:00. Fólk er beðið að huga að því hvort skólabækur eða bókasafnsbækur hafi gleymst heima og koma þeim til skila. Einnig er hægt að skila inn Unicef áheitum. Óskilamunir verða til sýnis og eru allir hvattir til að kíkja á þá. Að sumarleyfi loknu verður Hrafnagilsskóli settur mánudaginn 24. ágúst kl. 13:00 og kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Skólastjórnendur
01.06.2026
Fréttir