Þorrablót Eyjafjarðarsveitar verður haldið í Íþróttahúsi Hrafnagilsskóla laugardaginn 2. febrúar næstkomandi. Húsið verður opnað kl. 19:45 og blótið sett kl. 20:30. Veislustjórar kvöldsins verða Oddur Bjarni Þorkelsson og Sævar Sigurgeirsson, söngvarar úr Ljótu hálfvitunum, þrautreyndir leikarar og grínarar. Hljómsveitin Einn og sjötíu leikur fyrir dansi fram á rauða nótt.
Miðapantanir og miðasala sem hér segir:
Sorphirðudagatali fyrir 2013 verður dreift um sveitarfélagið með næsta Auglýsingablaði.
Dagatalið er einnig að finna undir: Þjónusta - umhverfismál - sorphirða/gámasvæði
Tillaga að svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012-2024 er nú til kynningar. Svæðisskipulagið tekur til sveitarfélaganna sjö við Eyjafjörð þ. e. Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar, Hörgársveitar, Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps.
Dalbjörg er búin að opna glæsilegan flugeldasölumarkað í Hrafnagilsskóla og verður hann opinn til kl. 16 á Gamlársdag. Við vonum að sjálfsögðu að sveitungar og velunnarar okkar verði duglegir að styrkja okkur með flugeldakaupum eins og undanfarin ár.
Með fyrirfram þökk, hjálparsveitin Dalbjörg
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar og starfsfólk á skrifstofu sveitarfélagsins, senda öllum íbúum Eyjafjarðarsveitar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
Sveitarstjórn og starfsfólk á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar
Áætlunin endurspeglar sterka stöðu Eyjafjarðarsveitar og er gert ráð fyrir hallausum rekstri sveitarfélagsins 2013.
Gjaldskrá leikskóla mun lækka auk þess sem afsláttur til námsmanna, einstæðraforeldra og atvinnulausra mun hækka.
Öðrum gjaldskrárbreytingum er haldið í lágmarki.
Landflutningar og UMSE hafa gert með sér samkomulag þess efnis að andvirði jólapakka tilboðs Landflutninga sem sent er til og frá sveitarfélögum á starfssvæði UMSE mun renna til barna- og unglingastarfs á svæðinu.