Fréttayfirlit

Tilkynningar um tjón af völdum refa

Eyjafjarðarsveit hvetur bændur, landeigendur og aðra sem verða fyrir tjóni af völdum refa til að tilkynna það til sveitarfélagsins. Mikilvægt er að upplýsingar um tjón af völdum refa séu skráðar og tilkynntar til Eyjafjarðarsveitar, svo yfirsýn fáist yfir umfang þess. Tilkynningar sveitarfélaga eru meðal þeirra upplýsinga sem nýttar eru við mat á umfangi tjóns og fyrirkomulagi refaveiða.
01.10.2026
Fréttir

Póstkassar í hverfinu

Búið er að taka niður póstkassana sem voru fyrir göturnar Laugartröð, Ártröð, Brekkutröð, Vallartröð, Skógartröð, Meltröð, Hjallatröð, Sunnutröð og Bakkatröð. Þeir sem vilja nálgast sinn póstkassa geta sótt hann á gámasvæðið sem er opið þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 13-17. Þau heimili sem eiga eftir að skrá sig fyrir póst í póstbox geta nálgast eyðublað í anddyri skrifstofu Eyjafjarðarsveitar eða sótt rafrænt á slóðinni
09.10.2026
Fréttir

Afreks- og hvatningarstyrkur Eyjafjarðarsveitar

Markmið afreks- og hvatninarstyrksins er að styðja ungt afreksfólk með lögheimili í Eyjafjarðarsveit til þátttöku í viðurkenndum alþjóðlegum verkefnum á sviði íþrótta og lista og mæta hluta af ferðakostnaði vegna slíkrar þátttöku. Styrkurinn er hvatningar- og viðurkenningarstyrkur en ekki almennur tómstundastyrkur. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 14 – 21 ára á því almanaksári sem verkefni fer fram sem og eiga lögheimili í Eyjafjarðarsveit við umsókn og þegar verkefni fer fram. Velferðar- og menningarnefnd fer yfir allar umsóknir en úthlutað er einu sinni á ári. 
07.10.2026
Fréttir

Menningarsjóður Eyjafjarðarsveitar auglýsir eftir umsóknum haustið 2026

Menningarsjóður Eyjafjarðarsveitar auglýsir eftir umsóknum í síðasta lagi þriðjudaginn 27. október vegna úthlutunar úr sjóðnum 1. nóvember næstkomandi. Tilgangur Menningarsjóðs Eyjafjarðarsveitar er: Að styrkja menningarverkefni í Eyjafjarðarsveit Að leggja til framlag til kaupa á listaverkum fyrir Eyjafjarðarsveit Að styrkja listamenn, félög og fræðimenn og aðra þá sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni Að fjármagna þau sérverkefni sem sjóðsstjórn kann að ákveða hverju sinni. Umsókn er rafræn hér. Samþykktir sjóðsins má nálgast hér.
07.10.2026
Fréttir

Bókasafnið á Facebook

Ný Facebook síða komin í loftið fyrir bókasafnið. Þar er hægt að sjá opnunartímann, nýjustu bækurnar og margt fleira.
05.10.2026
Fréttir

Áhugasamir og áhugavert í Eyvind

Ritnefnd óskar eftir efni og/eða ábendingar í okkar árlega blað um efni sem væri gott eða gaman að fjalla um, bæði nýtt og gamalt. Eins óskum við eftir myndum í blaðið, forsíðumynd eða frá eða af einhverju áhugaverðu. Hægt er að hafa samband við Benjamín á Ytri-Tjörnum í síma 899-3585 / tjarnir@simnet.is og Berglindi á Hrafnagili í síma 6936524 / berglind@esveit.is
02.10.2026
Fréttir

Eyjafjarðarsveit leggur áherslu á hóflegar gjaldskrárhækkanir

Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög, ríkisvaldið og fyrirtæki vinni saman að þessum markmiðum og bendir á að Eyjafjarðarsveit hafi þegar gripið til aðgerða í þessa veru.
01.10.2026
Fréttir