Þorrablót Eyjafjarðarsveitar 2015
Þorrablót Eyjafjarðarsveitar verður haldið í íþróttahúsi Hrafnagilsskóla laugardaginn 31. janúar næstkomandi. Húsið verður opnað kl. 19:45 og blótið sett kl. 20:30.
Veislustjóri kvöldsins er kerling Gullna hliðsins, María Pálsdóttir frá Reykhúsum, og verður kvöldið hlaðið gríni og glensi.
Hljómsveitin Einn og sjötíu leikur fyrir dansi og heldur uppi fjörinu langt fram á nótt. Aldurstakmark er 1998.
13.01.2015