Fréttayfirlit

Tilkynningar um tjón af völdum refa

Eyjafjarðarsveit hvetur bændur, landeigendur og aðra sem verða fyrir tjóni af völdum refa til að tilkynna það til sveitarfélagsins. Mikilvægt er að upplýsingar um tjón af völdum refa séu skráðar og tilkynntar til Eyjafjarðarsveitar, svo yfirsýn fáist yfir umfang þess. Tilkynningar sveitarfélaga eru meðal þeirra upplýsinga sem nýttar eru við mat á umfangi tjóns og fyrirkomulagi refaveiða.
01.10.2026
Fréttir

Eyjafjarðarsveit leggur áherslu á hóflegar gjaldskrárhækkanir

Sveitarstjórn tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög, ríkisvaldið og fyrirtæki vinni saman að þessum markmiðum og bendir á að Eyjafjarðarsveit hafi þegar gripið til aðgerða í þessa veru.
01.10.2026
Fréttir

Fundarboð 683. fundar sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar

FUNDARBOÐ 683. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 1. október 2026 og hefst kl. 08:00.
29.09.2026
Fréttir

Kvenfélagskvöldkaffi - Allar kvenfélagskonur velkomnar og líka þær sem vilja verða kvenfélagskonur

Það verður opið hús í Félagsborg frá kl. 19 miðvikudaginn 30. september og heitt á könnunni. Engin kvöð að hafa eitthvað með sér en þær sem vilja hafa eitthvað til að maula er frjálst að hafa eitthvað með sér.
21.09.2026
Fréttir

Uppbyggingarsjóður opinn fyrir umsóknir

Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði atvinnuþróunar, nýsköpunar, menningar og samfélagsþróunar á Norðurlandi eystra. Rafrænn kynningarfundur verður haldinn þriðjudaginn 29. september kl. 12:00 á Teams. Á fundinum verður farið yfir helstu atriði varðandi umsóknir í sjóðinn og umsóknarferlið. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um sjóðinn áður en umsókn er send inn. Allar nánari upplýsingar um Uppbyggingarsjóð, úthlutunarreglur og umsóknir má finna á Uppbyggingarsjóður | SSNE.is
21.09.2026
Fréttir

Lokað á bókasafninu í dag 18. september

Vegna óviðráðanlegra orsaka er lokað á bókasafninu í dag föstudaginn 18. september 2026. Beðist er velvirðingar á því.
18.09.2026
Fréttir

Póstkassar - póstbox

Búið er að taka niður póstkassana í Hrafnagilshverfi og geta þeir sem vilja nálgast sinn póstkassa á gámasvæðinu. Best er að fara á opnunartíma þess sem er kl. 13-17 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Póstkassarnir eru norðanmegin á plani gámasvæðisins.
17.09.2026
Fréttir

Deildarstjóri í Krummakot

Leikskólinn Krummakot óskar eftir að ráða deildarstjóra. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í desember eða eftir nánar samkomulagi. Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi 12 km sunnan Akureyrar. Í skólanum eru nú um 75 börn á fimm deildum.
17.09.2026
Fréttir

Afleysing á deild - Krummakot

Við leitum að jákvæðum og áreiðanlegum einstaklingi til að sinna afleysingum á deild hjá okkur vegna fæðingarorlofs. Mikill möguleiki fyrir áframhaldandi ráðningu. Hlutverk afleysingamanneskju er mjög mikilvægt til að halda uppi samfellu og öryggi í dagskipulagi leikskólans. Við leitum að einstaklingi með áhuga á að vinna með börnum og starfa í lifandi og skemmtilegu umhverfi.
17.09.2026
Fréttir

Dagskrá Íþróttaviku Evrópu

Nú hefur dagskrá Íþróttaviku Evrópu litið dagsins ljós. Þar sameinast félagasamtök og einkaaðilar sveitarfélaginu í að búa til sem fjölbreyttasta dagskrá sem allir geta nýtt sér án endurgjalds.
17.09.2026
Fréttir